Beint í efni

Húsnæði til að starfrækja vinnustofu fyrir leiklist

Málsnúmer 1605103

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

31. fundur

Erindi Trausta Ólafssonar f.h. leiksmiðjunnar Frigg um áframhaldandi afnot af sal undir leiklistarstarfssemi.

Erindi Trausta Ólafssonar, f.h. leiksmiðjunnar Frigg, móttekið 20.04.18, um áframhaldandi afnot af sal á Garðatorgi til að starfrækja leiklistarstarfsemi.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og felur upplýsingastjóra að skoða nánar um áframhaldandi samning um afnot af salnum frá ágúst 2018 til maí 2019. Skoða þarf aðra notkun á salnum með tilliti til tímafjölda í salnum og skýrt skal kveðið á um umgengisreglur í salnum og öðrum sameiginlegum rýmum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

19. fundur

Upplýst um stöðu mála. Fyrirhugað er að útbúa samning um afnot af sal á Garðatorgi (samnýtt með öðrum) til reynslu á vorönn 2017.

Upplýsinga- og menningarfulltrúi hefur fundað með bréfritara og til stendur að gera samning við bréfritara um afnot af sal/fundarrými á Garðatorgi við hliðina á Gróskusalnum til reynslu nokkur skipti í viku á vorönn 2017.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

18. fundur

Áframhaldandi umræða um málið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Erindi Hrefnu Lindar Lárusdóttur, Trausta Ólafssonar og Guðrúnar Kristinsdóttur dagsett 9. maí 2016 um húsnæði fyrir leiklistar- og sviðslistarvinnustofur var lagt fram. Erindið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 17. maí sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd felur upplýsinga- og menningarfulltrúa að ræða við bréfritara.

Bæjarráð Garðabæjar

05

18. (1735). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.