18. (1735). fundur
18. (1735). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.05.2016
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Farþegatalningar hjá Strætó bs. árið 2015.
Á fund bæjarráðs mætti Ragnheiður Einarsdóttir, sérfræðingur í samgönguskipulagi hjá Strætó bs. og kynnti niðurstöður farþegatalningar Strætó bs. á árinu 2015 og samanburð við fyrri ár.
02
Garðatorg 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar húsnæðis að Garðatorgi 6. Um er að ræða húsnæði fyrir verlsun á 1. hæð og 12 íbúðir á 2. og 3. hæð.
María Grétarsdóttir situr hjá.
03
Umsókn Brynju, hússjóðs öryrkjabandalagsins um lóð fyrir raðhús, dags. 06.05.16.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um möguleika á úthlutun lóða.
04
Bréf Samgöngustofu varðandi umsögn um staðsetningu ökutækjalegu - fjölgun bifreiða, dags. 06.05.16.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Mycar ehf., kt. 590215-0230 Kauptúni 6 verði veitt starfsleyfi til að starfrækja ökutækjaleigu með allt að 100 bifreiðum, en um er að ræða starfsemi á vegum Toyota á Íslandi.
05
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um grunnskóla 675. mál., dags. 10.05.16.
Lagt fram.
06
Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi fyrir veitingastað í golfskála GKG.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
07
Sumarlaun nemenda tónlistarskóla Garðabæjar 2016
Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2016.
Þóra Sayaka Magnúsdóttir, kt. 151293-3529, söngnemandi.
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir, kt. 270297-2699, slagverksnemandi.
08
Dagforeldrar - Holtsbúð
Bæjarráð samþykkir að fella niður í eitt ár skilyrði í leigusamningi um Holtsbúð 87 um að leigutaki starfræki daggæslu.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að bjóða dagforeldrum aðstöðu í Holtsbúð 89 (klaustrið). Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
María Grétarsdóttir situr hjá.
09
Samþykkt um hænsnahald í Garðabæ
Bæjarráð vísar samþykkt um hænsnahald til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10
Bréf Trausta Ólafssonar o.fl. varðandi húsnæði til að starfrækja vinnustofu fyrir leiklist, dags. 09.05.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.
11
Tillaga menningar- og safnanefndar um bæjarlistamann Garðabæjar 2016.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2016.
12
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um veitingu styrkja úr Hvatningarsjóði ungra listamanna
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar að veita eftirfarandi styrki úr Hvatningasjóði ungra listamanna.
Hljómsveitin Hormónar kr. 250.000.
Godspelkór Jóns Vídalíns kr. 250.000.
13
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrk vegna útgáfu ljósmyndabókar
Lögð fram og vísað til bæjarstjóra.
14
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrk vegna tónleikaraðar kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita kennurum í Tónlistarskóla Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 350.000 vegna tónleikaraðar.
15
Drög að sameiginlegum reglum um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð vísar drögum að sameiginlegum reglum ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk til afgreiðslu bæjarstjórnar.