Beint í efni

Vetrarhátíð 2018 - safnanótt og sundlauganótt

Málsnúmer 1711210

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

28. fundur

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.-4. febrúar nk. með þátttöku safna og sundlauga frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Garðabæ verður dagskrá föstudagskvöldið 2. febrúar þegar verður opið hús í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi, Króki á Garðaholti og í forsetasetrinu á Bessastöðum. Að þessu sinni verður dagskrá í Álftaneslaug á föstudagskvöldinu 2. febrúar en ekki á laugardeginum vegna þorrablóts í íþróttahúsinu.
Dagskráin verður kynnt með dreifibréf í hús til íbúa og með auglýsingu í Garðapóstinum auk umfjöllunar á vefsíðu og fésbókarsíðu Garðabæjar og safnanna.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

27. fundur

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.-4. febrúar 2018 og innan hennar er Safnanótt föstudagskvöldið 2. febrúar og Sundlauganótt laugardagskvöldið 3. febrúar. Undanfarin ár hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu tekið þátt á báðum þessum kvöldum sem og í fyrra þegar ýmsar byggingar í sveitarfélögunum voru upplýstar sérstaklega í tilefni af Vetrarhátíð. Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar eru þegar byrjuð að huga að undirbúningi dagskrár en einnig er gert ráð fyrir opnun í Króki á Safnanótt. Einnig verður boðið upp á dagskrá í Álftaneslaug á sundlauganótt.