Beint í efni

28. fundur

09.11.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

28. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.11.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1610242

01

Ástandsskýrsla friðlýstra svæða 2016

Ástandsskýrsla friðlýstra svæða í Garðabæ 2016 hefur verið send til Umhverfisstofnunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610140

02

Ársfundur náttúruverndarnefnda 2016 og starfsskýrsla

Boðað hefur verið til ársfundar náttúruverndarnefnda með Umhverfisstofnun þann 10.11.2016 í Hvalfjarðarsveit.

Umhverfisstofnun minnir á skýrslu náttúruverndarnefnda. Samkvæmt lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd, skulu náttúruverndarnefndir veita Umhverfisstofnun yfirlit yfir störf sín með skýrslu í lok hvers árs.

Lögð fram drög umhverfisstjóra að starfskýrslu umhverfisnefnar 2016.

Samþykkt.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606183

03

Gerlamælingar í yfirborðsvatni og sjó á svæði Garðabæjar 2016

Niðurstöður efnagreininga frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands dags. 27.10.16. er hluti rannsóknar um efnamengun í Vífilsstaðavatni og Urriðavatni sem unnin er á árinu í umsjón Heilbrigðiseftirlitsins.

Lokaskýrsla er væntanleg.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611066

04

Umhverfisstefna - endurskoðun

Umhverfisstefna Garðabæjar var samþykkt af bæjarstjórn og útgefin árið 2001 og umhverfisstefna sveitarfélagsins Álftaness árið 2004.

Nú er unnið að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 eftir sameiningu sveitarfélaganna.

Umhverfisnefnd telur mikilvægt að endurskoða og sameina umhverfisstefnurnar.

Málsnúmer 1302243

05

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Til umræðu endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.