29. fundur
29. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
31.01.2017
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Brynhildur Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Guðrún Ólafía Þorleifsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1701354
01
Þróunarsjóður grunnskóla 2017
Farið yfir reglur, viðmið, umsóknareyðublöð og áherslur þróunarsjóðs grunnskóla. Ákveðið var í upphafi fundar að færa þennan dagskrárlið síðast á dagskrá. Undir þessum lið viku af fundi aðrir en kjörnir fulltrúar.
Málsnúmer 1611052
02
Áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál
Umræður um innihald bréfsins, stöðu skólastarfs og kennarastéttarinnar sem og mikilvægi þess að ásættanleg lausn finnist. Skólanefnd bindur vonir við að það viðbótarfjármagn sem bærinn leggur til grunnskólanna auk funda með skólastjórum og trúnaðaðarmönnum stuðli að áframhaldandi góðu skólastarf í Garðabæ.
Málsnúmer 1701358
03
Kjarasamningur grunnskólakennara - bókun 1
Kynning á Vegvísi samstarfsnefndar SÍS og FG vegna málefna grunnskólans. Verkáætlun skólaskrifstofu Garðabæjar lögð fram til kynningar og umræðu. Skólanefnd samþykkir verkáætlunina og bindur vonir við að þessi vinna verði til þess að efla skólastarf og skapa um það sátt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701152
04
Aukin fagmennska og gæði í æskulýðsstarfi sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar, mat skólanefndar að verkefnið sé þarft áhugavert.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611066
05
Umhverfisstefna - endurskoðun
Lagt fram til kynnningar