31. fundur
31. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.03.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1512139
01
Styrkumsókn til endurheimt votlendis
Endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn.
Framkvæmd við endurheimt votlendis austan Kasthúsatjarnar er lokið með því að fylla mold í skurði á svæðinu. Framkvæmdaferlið kynnt fyrir umhverfisnefnd.
Málsnúmer 1702009
02
Lífrænn úrgangur - ný skýrsla
Skýrslan "Lífrænn úrgangur til landgræðslu - ný tækifæri" frá Landgræslu ríkisins fjallar um húsdýraáburð, kjötmjöl, moltu og seyru. Skýrslan er send sveitarstjórnum til upplýsingar.
Lagt fram.
Málsnúmer 1701310
03
Fræðslu- og sögugöngur 2017
Drög að dagskrá að fræðslu- og sögugöngum á tímabilinu apríl - september 2017 lögð fram og samþykkt.
Málsnúmer 1703028
04
Hreinsunarátak 2017 - snyrtilegt umhverfi
Undirbúningur er hafin að vorhreinsun 2017 með hreinsunarátaki íbúa og vorhreinsun lóða sem þjónusta við garðeigendur.
1. Hreinsunarátak í nærumhverfi
2. Vorhreinsun lóða
Umhverfisnefnd samþykkir sama fyrirkomulag og verið hefur.
Málsnúmer 1605068
05
Útikennsla um fugla á Álftanesi
Umhverfisnefnd samþykkir að styrkja útikennslu um fugla fyrir nemendur Álftanesskóla í maí 2017.
Málsnúmer 1703022
06
Evrópsk samgönguvika 2017
Undirbúningur er hafin að þátttöku sveitarfélaga og dagskrá varðandi Evrópsku samgönguvikuna 16. - 22. september. Fundur var haldinn í umhverfis- og auðlindaráðuneyti með fulltrúum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, samtökum Hjólafærni og Strætó.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611066
07
Umhverfisstefna - endurskoðun
Umhverfisstefna Garðabæjar hefur verið í vinnslu og til umfjöllunar í nefndum bæjarins.
Umhverfisnefnd afgreiðir stefnuna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701094
08
Líffræðilegur fjölbreytileiki í Garðabæ
Markmið að líffræðilegri fjölbreyttni í Garðabæ hefur verið í vinnslu jafnhliða endurskoðun umhverfisstefnu Garðabæjar. Markmiðið er að hún verði viðauki umhverfisstefnunnar við útgáfu hennar.