Beint í efni

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 3/3 ´17.

Málsnúmer 1703004F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (808). fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., vetrarhátíð, 5. tl., jazzhátíð og 10. tl., auglýsing eftir forstöðumanni Hönnunarsafns. Gunnar Valur, færði Hörpu Þórsdóttur, fráfarandi forstöðumanni þakkir fyrir frábær störf í þágu safnsins.

Sigríður Hulda Jóndóttir, ræddi 8. tl., miðbæjarhátíð og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að Garðabær boði til fundar með rekstrar- og þjónustuaðilum á Garðatorgi. Markmið fundarins er annars vegar að tengja þessa aðila saman og hins vegar að fara yfir hvernig bæjarfélagið getur stutt við starfsemina á Garðatorgi.“

Greinargerð:
Garðatorg er í hjarta bæjarins og framkvæmdir við torgið eru langt komnar. Margir rekstrar- og þjónustuaðilar eru á torginu og mikilvægt er að starfsemi þeirra sé blómleg, þjónusti bæjarbúa vel og efli menningu og bæjarbrag í Garðabæ.
Á slíkum fundi væri hægt að ræða ýmis hagnýt málefni, svo sem bílastæðamál, merkingar og skilti, öryggismál, stofnun samtaka, samskiptavettvang, þráðlaust net á torginu, árlega viðburði sem efla bæjarbrag og frekara samstarf.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., miðbæjarhátíð og framkomna tillögu.

Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.

Fundargerðin er lögð fram.