Beint í efni

Urriðaholtsstræti 14-20 - DSK breyting

Málsnúmer 1708231

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (815). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna sameiningar lóðanna við Urriðaholtsstræti 14-20. Breytingin telst óveruleg

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (1797). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna sameiningar lóðanna við Urriðaholtsstræti 14-20. Breytingin telst óveruleg samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur grenndarkynning niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að lóðirnar Urriðaholtsstræti 14-16 og Urriðaholtsstræti 18-20 sameinist í eina lóð Urriðaholtsstræti 14-20. Þar sem að byggingarreitir bílageymslna á lóðinni liggja saman skapar það möguleika á samnýtingu þeirra. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfu 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik sé að ræða sbr. 3.mgr. sömu greinar.