20. (1786). fundur
20. (1786). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
30.05.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1705202
01
Umsagnarbeiðni vegna nýs rekstrarleyfis fyrir gistiheimili að Blikastíg 19
Bæjarráð telur ekki vera fyrir hendi skilyrði til að veita leyfi reksturs gistiheimilis að Blikastíg 19 þar sem starfsemi gistiheimilis er ekki í samræmi við skipulagsskilmála er gilda um viðkomandi lóð.
Málsnúmer 1705269
02
Bréf Hafnarfjarðar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Kaldársel, Kaldárbotna og Gjárnar, dags. 18.05.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705268
03
Bréf Hafnarfjarðar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, tenging Vallahverfis og Áslands við Kaldárselsveg, dags. 18.05.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705289
04
Bréf íbúa við Ásbúð varðandi umkvörtun vegna hundahalds, dags. 22.05.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705293
05
Erindi íbúa í Holtsbúð um að aðkeyrsla að vesturhluta opins svæðis í Holtsbúð verði opnuð að nýju, dags. 26.05.17.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705292
06
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (brottfall kröfu um ríkisborgararétt), 289. mál., dags. 26.05.17.
Málsnúmer 1703262
07
Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
Lagt fram minnisblað VSÓ Ráðgjafar um mat á tilboðum um knattspyrnugras á þrjá æfingavelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
Tilboð bárust frá eftirfarandi aðilum:
Altís (2 tilboð) kr. 73.146.000 - 88.176.000
My Turfs (5 tilboð) kr. 71.709.856 - 139.098.040
Laiderz (1 tilboð) kr. 53.699.591
Metatron (2 tilboð) kr. 74.956.000 - 76.892.000
Í minnisblaðinu kemur fram að aðeins Metatron uppfyllir allar kröfur útboðsgagna.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron ehf. í efnið Polytan-Ligaturf RS að fjárhæð kr. 76.892.000, enda séu uppfylltir að öðru leyti útboðsskilmálar og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705248
08
Bréf Björgvins Skúla Sigurðssonar varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir við gervigrasvöll o.fl. í Bæjargarði, dags. 20.05.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1704172
09
Svar við fyrirspurn varðandi samning um úthlutun lóðar fyrir veitingastað.
Málsnúmer 1605502
10
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.
Alls bárust tilboð upp á 1.850 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 2,95-3,14%.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku í allt að fjárhæð kr. 800.000.000 verðtryggt með 3,04 % vöxtum. Skuldabréf verða útgefin með stækkun á áður útgefnum flokki GARD 16 01.