Holtsbúð 45, br á dsk Ásbúðar/Holstbúðar
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
3. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinn grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits vegna byggingar geymslu í kjallara á lóðinni við Holtsbúð 45, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
03
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits vegna byggingar geymslu í kjallara á lóðinni við Holtsbúð 45, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásbúða og Holtsbúðar sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur stækki um 2,8 m til suðurs fyrir geymslu í kjallara. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Holtsbúðar 20, 22, 43 og 47.