3. fundur
3. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.06.2018
Kl. 15:00 - 15:34
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1803438
01
Landakot 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir íbúðarhúsið að Landakoti 1.Sótt er um leyfi til að byggja kvist á suðurhlið og svalir ásamt kvist yfir stigahús á norðurhlið. Jafnframt er sótt um abyggja svalir á 1. hæð og 2. hæð.
Landakot er innan deiliskipulagssvæðis Hólmatúns sem tók gildi árið 1998. Samkvæmt grein 1.2. í deiliskipulagsskilmálum og samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti er gert ráð fyrir íbúðarhúsi og útihúsum á lóð Landakots.
Tillögur um breytingar þar sem gert er ráð fyrir svölum og kvistum eru því í samræmi við deiliskipulag og fjarlægð íbúðarhússins við aðliggjandi íbúðarhús er það mikil að breytingin hefur ekki áhrif á innsýn að aðliggjandi húsum eða lóðum.
Byggingarleyfisumsókn kallar því ekki á deiliskipulagsbreytingu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1803448
02
Beiðni um heimild til að reisa girðingu við Unnargrund
Lögð fram ósk Byggingarsamvinnufélags eldri borgara um heimilað verði að reisa skjólvegg á lóðarmörkum lóðanna Unnargrund 1,3,5,7 og 9 annarsvegar og 4,6 og 9 hinsvegar. Ekki er kveðið á um gerð girðinga á lóðarmörkum í deiiskipulagi.
Með vísan í reglur um veggi á lóðarmörkum í Garðabæ samþykkir skipulagsstjóri gerð girðinganna eins og þeim er lýst í erindi byggingarsamvinnufélagsins dags 26.mars 2018 enda byrgi girðingar ekki sýn frá íbúðum til sjávar. Hæð þeirra skal ekki vera hærri en 1,70. Æskilegra er að timburáferð og náttúrulegir litir séu ráðandi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1803288
03
Holtsbúð 45, br á dsk Ásbúðar/Holstbúðar
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinn grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri samþykkir tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1805106
04
Hraunhólar 6- hækkun á þaki
Lögð fram fyrispurn lóðarhafa um breytingar á íbúðarhúsinu að Hraunhólum 6. Spurt er hvort meðfylgjandi tillaga myndi kalla á deiliskipulagsbreytingu. Deiliskipulag Hraunsholts Eystra skilgreinir ekki hámarkshæð þeirra húsa sem þegar eru byggð en kveður á um að viðbyggingar skulu vera jafnháar þeim húsum sem fyrir eru. Þar sem að hér er um breytingu á kvistum að ræða og þarafleiðandi hækkun hluta húss um 60 cm og að fjarlægð við næstu hús er talsverð auk þess sem hámarkshæð nýrra húsa er allt að 7 m þá telur skipulagsstjóri að breyting hússins rúmist innan gildandi deiliskipulagsskilmála.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1805201
05
Lambhagi 6
Lögð fram fyrirspurn um gerð kvisa á íbúðarhús að Lambhaga 6. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildin á svæðinu er byggingarleyfisumsókn vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Lambhagi 5, 20 og 7 og Búðarflatar 6 og 4. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til hafa áritað á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemdir við byggingarleyfisumsóknina.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1805059
06
Blikanes 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á gluggum ofl. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Með vísan í 3.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er grenndarkynning felld niður þar sem að byggingarleyfið varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og leyfisveitanda. Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við að byggingarleyfi samkvæmt framlögðum gögnum verði veitt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.