Hraunhólar 6- hækkun á þaki
Málsnúmer 1805106
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
3. fundur
Lögð fram fyrispurn lóðarhafa um breytingar á íbúðarhúsinu að Hraunhólum 6. Spurt er hvort meðfylgjandi tillaga myndi kalla á deiliskipulagsbreytingu. Deiliskipulag Hraunsholts Eystra skilgreinir ekki hámarkshæð þeirra húsa sem þegar eru byggð en kveður á um að viðbyggingar skulu vera jafnháar þeim húsum sem fyrir eru. Þar sem að hér er um breytingu á kvistum að ræða og þarafleiðandi hækkun hluta húss um 60 cm og að fjarlægð við næstu hús er talsverð auk þess sem hámarkshæð nýrra húsa er allt að 7 m þá telur skipulagsstjóri að breyting hússins rúmist innan gildandi deiliskipulagsskilmála.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.