Beiðni um heimild til að reisa girðingu við Unnargrund
Málsnúmer 1803448
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
3. fundur
Lögð fram ósk Byggingarsamvinnufélags eldri borgara um heimilað verði að reisa skjólvegg á lóðarmörkum lóðanna Unnargrund 1,3,5,7 og 9 annarsvegar og 4,6 og 9 hinsvegar. Ekki er kveðið á um gerð girðinga á lóðarmörkum í deiiskipulagi.
Með vísan í reglur um veggi á lóðarmörkum í Garðabæ samþykkir skipulagsstjóri gerð girðinganna eins og þeim er lýst í erindi byggingarsamvinnufélagsins dags 26.mars 2018 enda byrgi girðingar ekki sýn frá íbúðum til sjávar. Hæð þeirra skal ekki vera hærri en 1,70. Æskilegra er að timburáferð og náttúrulegir litir séu ráðandi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.