Beint í efni

Blikanes 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1805059

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

3. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á gluggum ofl. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Með vísan í 3.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er grenndarkynning felld niður þar sem að byggingarleyfið varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og leyfisveitanda. Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við að byggingarleyfi samkvæmt framlögðum gögnum verði veitt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.