8. (1823). fundur
8. (1823). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.02.2018
Kl. 08:00 - 08:55
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1710169
01
Fjölnota íþróttahús - Alútboðsgögn
Á fund bæjarráðs mættu Stefán Veturliðason verkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu og Guðbjörg Brá Gísladóttir, verkfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerðu grein fyrir alútboðsgögnum vegna byggingar fjölnota íþrótthúss í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi útboðsgögn og verða þau send þátttakendum í lokuðu alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Í gögnunum koma fram fyrirvarar um endanlegt deiliskipulag svæðisins. Þátttakendur í lokuðu útboði eru eftirfarandi verktakar samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá fundi, dags. 1. febrúar 2018.
Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379 Eykt ehf., kt. 560192-2319 Ístak hf., kt. 430214-1520 Munck á Íslandi, kt., 701013-0340
Málsnúmer 1802307
02
Bréf Golfklúbbsins Setbergs um lækkun fasteignagjalda, dags. 21.02.18.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 380.000 til greiðslu fasteignagjalda fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802308
03
Bréf Drafnarhúss um styrk vegna námsferðar, dags. 13.02.18.
Málsnúmer 1802285
04
Bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt, dags. í febrúar 2018.
Málsnúmer 1611192
05
Bréf Alþjóðaskólans á Íslandi varðandi húsnæðismál, dags. 15.02.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til málsmeðferðar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711160
06
Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um boðaðar breytingar á sviði barnaverndar, dags. 23.02.18.
Lögð fram.
Málsnúmer 1802204
07
Samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfandi aðila sem fulltrúa í starfshóp til að kanna grundvöll fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður menningar- og safnanefndar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar.
Þóroddur Bjarnason, varafulltrúi í menningar- og safnanefnd.
Laufey Jensdóttir, formaður Grósku.
Ingibjörg Guðjónsdóttir, kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar.