28. fundur
28. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Flataskóla
08.12.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Steinunn Jóhanna Bergmann - varamaður
Starfsmenn
- Margrét Harðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Guðrún Ólafía Þorleifsdóttir - fulltrúi kennara
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Jóhann Steinar Ingimundarson varaformaður stýrði fundi í fjarveru formanns.
Dagskrá
Málsnúmer 1610274
01
Niðurstöður samræmdra prófa könnunarprófa
Fyrstu niðurstöður kynntar skólanefnd. Beðið er skýrslu Menntamálastofnunnar er varðar heildarniðurstöðu. Fulltrúar skólanna munu í kjölfar skýrslunnar hitta skólanefndina og fara yfir niðurstöður og framkvæmd samræmdra könnunarprófa.
Málsnúmer 1611192
02
Beiðni um viðræður um húsnæðismál Alþjóðaskólans
Beiðni Alþjóðaskólans um viðræður um húsnæðismál og innheimtu skólagjalda lögð fram. Að mati skólanefndar hefur Alþjóðaskólinn stuðlað að aukinni breidd í skólastarfi í bænum og mikilvægt að lausn finnist á húsnæðismálum skólans sem fyrst. Ræddar voru upphaflegar forsendur þess að einkaskólar í Garðabæ skyldu ekki innheimta skólagjöld af bæjarbúum. Í kjölfarið var fræðslu og menningarsviði falið að útbú minnisblað varðandi innheimtu skólagjalda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1612026
03
Unglingdeild Sjálandsskóla
Fræðslu- og menningarsviði falið að ræða við hlutaðeigandi.
Málsnúmer 1612027
04
Efling grunnskólastarfs í Garðabæ
Skólanefnd lýsir mikilli ánægju með að skólastarf í bænum skuli eflt með auknu fjárframlagi. Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði í samvinnu við skólastjórnendur og trúnaðarmenn kennara að mynda rýnihóp sem kemur með tillögur um hvernig þessum fjármunum sé best varið.
Málsnúmer 1512094
05
Kynning á Flataskóla
Skólanefnd ræddi við tvo nemendur í 5. bekk um skólastarfið, gekk um skólann og fylgdist með nemendum við undibúning jólamarkaðar.