Dyngjugata 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
18. (801). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi að Dyngjugötu 1-3 vegna frávika frá ákvæðum skilmála um innganga í tvær íbúðir, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (1762). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um innganga í tvær íbúðir, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga..
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
17. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að inngangi í tvær íbúðir frá svalagangi en skilmálum er kveðið á um innganga í íbúðir frá stigagangi.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
07
41. (1758). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hraungötu ehf., kt. 470613-0330, leyfi til að byggja 18 íbúða fjölbýlishús að Dyngjugötu 1-3.
Gjald vegna fjölgunar íbúða um tvær samkvæmt breytingu á deiliskipulagi nemur kr. 1.521.977.