Beint í efni

41. (1758). fundur

25.10.2016
Bæjarráð Garðabæjar

41. (1758). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

25.10.2016

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1607083

01

Dyngjugata 1-3 -Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hraungötu ehf., kt. 470613-0330, leyfi til að byggja 18 íbúða fjölbýlishús að Dyngjugötu 1-3.

Gjald vegna fjölgunar íbúða um tvær samkvæmt breytingu á deiliskipulagi nemur kr. 1.521.977.

Málsnúmer 1606498

02

Dyngjugata 14 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Okta ehf., kt. 500915-0130, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Dyngjugötu 14.

Málsnúmer 1606497

03

Dyngjugata 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Iðn-ak, kt. 440310-0280, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Dyngjugötu 16.

Málsnúmer 1610190

04

Bréf Sveins Erlendssonar varðandi endurheimt votlendis Kasthúsatjarnar, dags. 16.10.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610203

05

Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í golfskála GKG

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1609048

06

Leiðréttingar á kjörskrá vegna kosninga til Alþingis.

Bæjarráð samþykkir að gera leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt afgreiðslu Þjóðskrár Íslands á umsókn neðangreindra aðila um að verða teknir á kjörskrá.

Guðbjörg Inga Aradóttir 130572-3249 Kjördeild 1 - Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Guðrún Rósa Gunnsteinsdóttir 200959-3889 Kjördeild 1 - Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Jóhann Stefánsson 191166-6049 Kjördeild 1 - Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Rúnar Óli Bjarnason 020578-4919 Kjördeild 1 - Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Þá samþykkir bæjarráð að gera leiðréttingu á kjörskrá samkvæmt tilkynningu Þjóðskrá Íslands um andlát tveggja einstaklinga eftir viðmiðunardag kjörskrár sem var 24. september sl., sbr. 4. mgr. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.

Málsnúmer 1610212

07

Bréf Hestamannafélagsins Sóta um lagfæring á kennslugerði, dags. 18.10.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610197

08

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um styrkveitingu til félagsmiðstöðvarinnar Klakans.

Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um að veita Félagsmiðstöðinni Klakanum viðbótarframlag að fjárhæð kr. 500.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601592

09

Úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2016

Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla.

Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 5.107.149 úr sjóðnum til 10 verkefna.

Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610029

10

Opnun tilboða í vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna 2016-2019

Eftirfarandi tilboð eru lögð fram.

Dráttarbílar ehf. kr. 40.982.040

Garðlist kr. 49.996.800

Jarðvirki ehf. kr. 60.300.000

Kostnaðaráætlun kr. 56.520.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610250

11

Bréf Stígamóta um styrk á árinu 2017, dags. 10.10.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512105

12

Bréf Golfsambands Íslands um þakkir fyrir stuðning við frmakvæmd Evrópumóts kvennalandsliða sumarið 2016, dags. 15.10.16.

Málsnúmer 1605502

13

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - drög að römmum málaflokka og deilda.

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir römmum að fjárhagsáætlun 2017, samkvæmt málafokka- og deildayfirliti.