Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi brunavarnaáætlun, dags. 05.12.18. (Slökkviliðsstjóri mætir á fundinn)
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (1860). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Ingveldur Lára Þórðardóttir, skrifstofustjóri og kynntu þau ný samþykkta brunavarnaráætlun. Áætlunin er sett á grundvelli laga um brunavarnir og markmið hennar er að tryggja að slökkviliðið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Brunavarnaáætlunin á að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, umhverfi og eignir með fullnægjandi eldvarnaeftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Bæjarráð Garðabæjar
03
45. (1762). fundur
Í bréfinu er vakin athygli á að brunavarnaáætlun sveitarfélagsins er fallin úr gildi.
Bæjarstjóra falið að ræða málið í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04