Beint í efni

Sunnuflöt 28 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 1610133

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (801). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (801). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (801). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Sunnuflöt 28, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynning er skilyrt um samþykki lóðarhafa við Sunnuflöt 26.

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. (1762). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Sunnuflöt 28, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynning er skilyrt um samþykki lóðarhafa við Sunnuflöt 26.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir byggingarreit á lóð fyrir stækkun baðhús sem liggur að stoðvegg að lóð nr. 26. Gólfkóti yrði sá sami og í kjallara íbúðarhússins og hámarkshæð yrði 3 m.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata en með þeim fyrirvara að áður liggi fyrir samþykki eigenda Sunnuflatar 26.
Grenndarkynning nær til aðliggjandi lóða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

16. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu baðhúss á lóð utan byggingarreits og við lóðarmörk lóðarnniar Sunnuflöt 26.
Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndinni og leggur til að sótt verði um breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við tillöguna. Nefndin mælir með því að umsækjandi sé í samráði við eigendur aðliggjandi lóðar um mótun tillögunnar.