Beint í efni

19. fundur

12.12.2016
Skipulagsnefnd Garðabæjar

19. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

12.12.2016

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Birgir Örn Birgisson - varamaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Á fund nefndarinnar voru mættir aðalskipulagsráðgjafar: Árni Ólafsson, Eva Dís Þórðardóttir og Bergþóra Kristinsdóttir:

Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Garðabæajr 2016-2030 sem hefur verið breytt til samræmis við niðurstöðu síðasta fundar nefndarinnar. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi bæjarstjóra Garðabæjar og Hafnarfjarðar ásamt svæðisskipulagsstjóra og fulltrúum Vegagerðarinnar. Niðurstaða þess fundar var sú að Hafnfirðingar eru sáttir við útfærslu tillögunnar á legu "Ofanbyggðavegar" frá Svínholti að Reykjanesbraut við norðurenda Setbergslands. Gerðar hafa verið breytingar á texta greinargerðar í 4.kafla til áréttingar þess að þegar niðurstaða skoðunar sem nú fer fram á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins liggur fyrir verði breytingar sem sú niðurstaða kallar hugsanlega á innleidd í aðalskipulag Garðabæjar. Bæta skal við texta um hugsanlega útfærslu hluta "Ofanbyggðavegar" í Setbergsholti í göngum.

Árni Ólafsson gerði grein fyrir skekkju sem varð vegna mistaka í útreikningi á íbúðafjölda á Álftanesi. Miðað við óbreyttar áherslur tillögunnar hefði það þýtt ríflega 1300 íbúiðir í stað tæplega 1100 íbúða. Nefndin sammála um að tillaga geri áfram ráð fyrir 1100 íbúðum. Afmörkun landnotkunarreits þjóðhöfðingjasetur breytist við Bessastaðagranda þar sem um mislestur á deiliskipulagsuppdrætti var að ræða og nær reiturinn því ekki inn í land Selskarðs. Í skipulagsákvæðum fyrir Sjáland skal gera ráð fyrir 6 hæða hámarki. Taka skal fram í kafla 4.3. að borgarlína skerði ekki þá flutningsgetu bílaumferðar sem fyrir er á Hafnarfjarðarvegi.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillögu að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 með þeim lagfæringum sem gerðar hafa verið í kjölfar forkynningar verði vísað í auglýsingu í samræmi við 31.gr. skipulagslaga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3.mgr.30.gr.sömu laga.

Málsnúmer 1611188

02

Sunnuflöt 22 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Lögð fram fyrirspurn um breytingar á einbýlishúsinu að Sunnuflöt 22 sem kalla á deiliskipulagsbreytingar. Tillagan gerir ráð fyrir viðbyggingu við bílskúr sem lengir húshlið umfram 7,5 m hámark bílageymslu og bíslag við anddyri nær út fyrir byggingareit. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1611187

03

Breiðás 11 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um breytingar á íbúðarhúsinu þar sem m.a. er gert ráð fyrir íbúðarherbergi ofan í bílageymslu og viðbygging á baklóð. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1611141

04

Lynghólar 32-38 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að á lóðunum Lynghólar 32-38 verði 4 fjölbýlishús með 2 íbúðum í hverju húsi í stað raðhúslengju með 4 íbúðum á tveimur hæðum. Engin breyting verður á byggingarmagni né húshæð en íbúðum fjölgar úr 4 í 8. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Senda skal dreifibréf í öll hús í Lynghólum og Hraunhólum þar sem athygli verður vakin á kynningunni.

Málsnúmer 1609316

05

Ljósakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem gert er ráð fyrir íbúðarherbergjum í kjallara og breytingum á gluggaskipan þeirra og aðkomu. Skipulagsnefnd hafnar því að taka málið fyrir sem deiliskipulagsbreytingu og vísar því til byggingarfulltrúa.

Málsnúmer 1606457

06

Holtsvegur 35,dsk br, þak á bílageymslu, handrið.

Erindi tekið fyrir í júlí 2016. Þar sem óskað var eftir fráviki frá skipulagsskilmálum er varðaði svalahandrið og gras á þaki bílskúra. Skipulagsnefnd hafnaði í fyrra skipti erindi húsbyggjanda en nú hafa íbúar húss óskað eftir þessari breytingu.

Lögð fram umsókn íbúa hússins Holtsvegur 35 um breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir því að gefið sé eftir ákvæði um útfærslu handriða og ákvæði um gras á þaki bílageymslu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé heimilað að víkja frá kröfum 2.mgr.43.gr.skipulagslaga sbr. 3.mgr.sömu greinar sömu laga.