Ljósakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1792). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigríði S. Gunnlaugsdóttur, kt. 290866-4569 leyfi fyrir breytingu á útliti húss og innra skipulagi rýma í kjallara hússins að Ljósakri 2. Fyrir liggur samþykki allra eigenda og yfirlýsing um þinglýsingu kvaðar vegna útleigu og sölu viðkomandi rýma.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
19. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem gert er ráð fyrir íbúðarherbergjum í kjallara og breytingum á gluggaskipan þeirra og aðkomu. Skipulagsnefnd hafnar því að taka málið fyrir sem deiliskipulagsbreytingu og vísar því til byggingarfulltrúa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarherbergjum í kjallara fjölbýlishússins. Ljóst að tillagan kallar á breytingu deiliskipulags. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.