Holtsvegur 35,dsk br, þak á bílageymslu, handrið.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (803). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis að Holtsvegi 35 þó að ekki sé fylgt að fullu ákvæði í skilmálum um útfærslu handriða og ákvæða um gras á þaki bílageymslu en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
49. (1766). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að ekki sé fylgt að fullu ákvæði í skilmálum um útfærslu handriða og ákvæða um gras á þaki bílageymslu en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
19. fundur
Erindi tekið fyrir í júlí 2016. Þar sem óskað var eftir fráviki frá skipulagsskilmálum er varðaði svalahandrið og gras á þaki bílskúra. Skipulagsnefnd hafnaði í fyrra skipti erindi húsbyggjanda en nú hafa íbúar húss óskað eftir þessari breytingu.
Lögð fram umsókn íbúa hússins Holtsvegur 35 um breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir því að gefið sé eftir ákvæði um útfærslu handriða og ákvæði um gras á þaki bílageymslu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé heimilað að víkja frá kröfum 2.mgr.43.gr.skipulagslaga sbr. 3.mgr.sömu greinar sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts er varðar útlitsbreytingar húss á lóðinni nr. 35 við Holtsveg.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um gegnsæi handriða og grass á þaki bílageymslu sé breytt.
Skipulagsnefnd hafnar umsókninni.