Beint í efni

3. fundur

30.03.2017
Fjölskylduráð Garðabæjar

3. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

30.03.2017

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1612159

01

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1612159 - barnaverndarmál. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1610112

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2016

Tekið er fyrir mál nr. 1610112 íbúakönnun - þjónustukönnun 2016.

Bæjarráð vísaði könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.

Hulda Hauksdóttir, upplýsinga- og menningarfulltrúi, situr fundinn undir þessum lið og kynnir helstu þætti könnunarinnar sem mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins.

Greint er frá því að bæjarráð hafi samþykkt að setja á fót rýnihópa til að greina frekar niðurstöður í einstaka málaflokkum.

Málsnúmer 1703142

03

Stefnumótun í æskulýðsmálum

Tekið er fyrir mál nr. 1703142 Stefnumótun í æskulýðsmálum.

Á fundi sínum 21.3. 2017 vísaði bæjarráð Garðabæjar bréfi Mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 28.2.2017 ásamt stefnu í æskulýðsmálum 2014-2018 til kynningar í þeim nefndum bæjarins sem starfa á sviði barna og ungmenna. Í bréfi ráðuneytis kemur fram ósk um samstarf allra sem starfa á sviði barna og ungmenna.

Lagt fram og rætt.