1. (1816). fundur
1. (1816). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
09.01.2018
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vilborgu Grétarsdóttur, kt. 100178-5169 leyfi til að byggja einbýlishús að Brúnási 12.
Útgáfa byggingarleyfis er háð því að samhliða sé útgefið byggingarleyfi fyrir lóðirnar við Brúnás 10 og Brekkuás 7, sbr. ákvæði í úthlutunarsamningi lóðarinnar.
02
Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svövu Helgu Carlsen, kt. 220171-3619 leyfi fyrir innri breytingum einbýlishússins að Haukanesi 16.
03
Hraungata 2-8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að veita Tunguhrauni ehf., kt. 580817-2110 leyfi til til að byggja þrjú raðhús að Hraungötu 2-8.
04
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Eftirfarandi tillaga samþykkt.
Einstaklingar með tekjur árið 2016 allt að kr. 5.000.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 5.500.000.
Hjón með tekjur árið 2016 allt að kr. 6.400.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.700.000.
05
Umsagnarbeiðni um umsókn um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti Kvenfélags Álftaness
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Umsagnarbeiðni um umsókn um tímabundið áfengisleyfis á þorrablóti Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Sigurður Guðmundsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
07
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignasjóður), 11. mál., dags. 22.12.17.
08
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 26. mál., dags. 18.12.17.
09
Bréf Alþingis um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga ( samn. Sþ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál) 27. mál., dags. 18.12.17.
10
Bréf Alþings um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), 40. mál., dags. 21.12.17.
11
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti varðandi drög að lagafrumvarpi um lögheimili, dags. 22.12.17.
Lögð fram.
12
Reglur um hvatapeninga árið 2018.
Bæjarráð samþykkir nýjar reglur um hvatapeninga þar sem fjárhæð þeirra árið 2018 hækkar úr kr. 32.000 í kr. 50.000.
Fylgiskjöl
13
Bréf íbúa á Hleinum varðandi brottnám vegtengingar við Gamla Álftanesveginn, dags. 01.01.18.
14
Tillaga Bjartrar framtíðar um úttekt og öryggismat á vegtengingu á nýja Álftanesveginum við Garðaholt
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að óskað hefur verið eftir öryggismati frá Vegagerðinni varðandi gatnamótin og umferð á gamla Álftanesvegi.
Bæjarráð vísar málinu til nánar skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
15
Bréf Landgræðslu ríkisins varðandi endurheimt og varðveislu votlendis á Íslandi, dags. 12.12.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari umfjöllunar umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
16
Bréf umhverfisnefndar varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæðum í Heiðmörk, dags. 22.12.17.
Bæjarráð samþykkir að leggja til bæjarstjórn að veita leyfi til framkvæmda við bílastæði við upphaf gönguleiðar á Búrfell samvæmt deiliskipulagi Heiðmerkur.
Fylgiskjöl
17
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Guðrúnar Elínar Herbertsdóttur varðandi leyfi fyrir áramótabrennu, dags. 02.01.18.
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Fylgiskjöl
18
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur varðandi íbúðir í eigu Garðabæjar, dags. 03.01.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
19
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur varðandi kennslu í upplýsingatækni í grunnskólum, dags. 03.01.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
20
Fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur varðandi upplýsingar um kaup frá birgjum á árinu 2017, dags. 03.01.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
21
Bréf umboðsmanns Alþingis varðandi athugun á húsnæðisvanda utangarðsfólks, dags. 29.12.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
22
Bréf velferðarráðuneytis um fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar, dags. 21.12.17.
Bæjarráð fagnar ákvörðun ráðuneytisins um að verða við erindi Garðabæjar um heimild til fjölgunar rýma í dagdeild.
Fylgiskjöl
23
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi gjaldskrá, dags. 18.12.17.
Bæjarráð vísar gjaldskrá slökkviliðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
24
Niðurstöður samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
Lögð fram og kynnt eftirfarandi niðurstaða dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.
1. verðlaun kr. 5.000.000 Höfundar: Batteríið, Landslag og Efla
2. verðlaun kr. 2.000.000 Höfundar: Teiknistofa Arkitekta , Gylfi guðjónsson og félagar.
2. verðlaun kr. 2.000.000 Höfundar: Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, Skipulag og hönnun, Inga Sigurjónsdóttir, arkitekt
3. verðlaun kr. 1.000.000 Höfundar: Sei, Barbara Sopolinska, Einar Hlér Einarsson, Shruthi Basappa.
Bæjarráð vísar niðurstöðum dómnefndar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
25
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru eigenda Selskarðs á framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu, dags. 29.12.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
26
Reglur um styrki til náms í leikskólakennarafræðum
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir tillögu að nýjum reglum um styrki fyrir starfsmenn leikskóla til að sækja nám.
Bæjarráð samþykkir tillögu að reglum fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar vegna styrkja til náms í leikskólafræðum.