Fundargerð bæjarráðs frá 25/4´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (810). fundur
María Grétarsdóttir, ræddi 24. tl., fyrirspurn varðandi samning um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í ársbyrjun 2016 auglýsti Garðabær lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog. Þrjár umsóknir bárust. Umsóknir skyldu metnar með tilliti til fjárhagslegs styrks umsækjanda, mati á hugmyndum um fyrirkomulag byggingar og raunhæfni hugmynda um uppbyggingu, fjárfestingu og rekstur veitingastaðar.
Þann 7. júní 2016 samþykkti bæjarráð með fjórum atkvæðum Áslaugar Huldu (D), Sigríðar Huldu (D), Jónu (D) og Gísla (S) að leggja til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við óstofnað hlutafélag Arnarvog ehf. um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari var um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda. Áætlanir Arnarvogs gerðu ráð fyrir að hefja rekstur um 18 mánuðum frá úthlutun lóðar eða í árslok 2017.
Samkvæmt yfirlýsingu dagsettri 26. febrúar 2016 skuldbinda fjórir aðilar sig til að stofnað verði einkahlutafélagið Arnarvogur ehf og að leggja félaginu til fjármagn upp á að minnsta kosti 150 milljónir króna. Þessir aðilar eru Símon Sigurpálsson f.h. Miðbúðarinnar fjárfestingarfélags ehf. (30%), Brynjar Már Magnússon f.h. Fjárfestingarfélagsins Pluma ehf (30%), Benedikt Einarsson f.h. Hængs ehf. (30%) og Sigurbjörn Ingimundarson (10%). Bæjarstjóri undirritar samning við Sigurbjörn Ingimundarson f.h. Arnarvogs ehf þann 11. nóvember 2016. 28. nóvember 2016 er félagið Arnarnesvogur ehf. stofnað og eru stofnendur þess Miðbúðin hf. (40%), Fjárfestingafélagið Pluma ehf (40%), Bloom ehf. (10%) og Vinaminni, óskráð eignarhaldsfélag (10%). Benedikt Einarsson/Hængur ehf. er ekki meðal stofnenda né heldur Sigurbjörn Ingimundarson sbr. þó framangreinda yfirlýsingu en nýir aðilar komnir inn þ.e. Bloom ehf. og Vinaminni, óskráð eignarhaldsfélag. Einnig er Miðbúðin hf. komin inn í stað Miðbúðarinnar eignarhaldsfélags ehf.
Fólkið í bænum óskar eftir skýringum á hvers vegna gengið var til samninga við óskráð félag sbr. að samningur bæjarins er gerður við Arnarvog ehf. en ekki Arnarnesvog ehf. Einnig er óskað skýringa á af hverju bæjarfulltrúum hafi ekki verið kynnt breytt eignarhald samningsaðila við úthlutun lóðarinnar.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði og 24. tl., fyrirspurn varðandi samning um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Björg Fenger, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði. Þá ræddi Björg 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og færði skátunum hamingjuóskir í tilefni afmælisins.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og tók undir afmælisóskir til félagsins.
Steinþór Einarsson, ræddi 20. tl., ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - ungt fólk og lýðræði og 26. tl., endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils og tók undir hamingjuóskir til félagsins.
Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.