Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 6/6'17.

Málsnúmer 1706004F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (813). fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að frá og með hausti 2017 verði daglegum ferðum á Strætóleið 23-Álftanes fjölgað sem hér segir.
o Fyllt verði upp í eyður á akstri leiðar 23 á virkum dögum þannig að ekið verði samfellt á hálftíma fresti. Auk þess verði einni viðbótarferð bætt við á kvöldin og eftir það tveimur ferðum í pöntunarþjónustu.
o Strætó aki að lágmarki með klukkutíma tíðni bæði á laugardögum og sunnudögum, þó sé horft til þess að hugsanlega er ekki mikill kostnaðarmunur á klukkutíma og hálftíma aksturstíðni. Síðasta kvöldferð vagnsins og pöntunarþjónusta á kvöldin verði eins og á virkum dögum
Litið skal á verkefni þetta sem tilraunaverkefni til a.m.k. tveggja ára sem fylgt verði eftir með markvissum rafrænum farþegatalningum svo að hægt sé að meta í lok verkefnisins með áreiðanlegum hætti hvort og þá hvenær og hvar á leið 23 farþegafjöldi eykst í kjölfar framangreindra breytinga“

Greinargerð:
Haustið 2016 barst bæjaryfirvöldum í Garðabæ erindi frá búum á Álftanesi varðandi Strætóleið 23-Álftanes. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2017 var fimm milljónum króna bætt við áætlað ársframlag bæjarins til Strætó bs. til þess að vinna málið áfram á yfirstandandi ári. Í kjölfarið fól bæjarstjóri fulltrúa bæjarins í stjórn Strætó að leiða málið áfram. Óskað var eftir aðkomu þriggja íbúa utan af Álftanesi að óformlegum samráðshópi til að ræða ofangreint erindi íbúa á Álftanesi og leita lausna á þeim atriðum sem þar voru tilgreind.
Samráðshópurinn hefur nú skilað greinargerð, dags. 15. maí 2017, til bæjarstjóra þar sem farið er efnislega yfir erindi íbúa frá haustinu 2016 og lagðar fram tillögur til lausnar á einstökum málum í því. Er framangreind samþykkt bæjarstjórnar í fullu samræmi við tillögur samráðshópsins.
Um nánari útfærslu einstakra liða í samþykkt bæjarstjórnar verði greinargerð samráðshópsins höfð til hliðsjónar t.a.m. varðandi hugsanlega styttingu aksturstíma leiðar 23, tímasetningu pöntunarþjónustu á kvöldin og hugsanlegar breytingar á stoppistöðvum. Þá verði haft samráð við Strætó um að pöntunarþjónusta á kvöldin sé með hálftíma fyrirvara en ekki klukkutíma fyrirvara eins og nú er.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl.. minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og framkomna tillögu. Steinþór lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

"Allt frá því á árinu 2011 hefur undirritaður flutt tillögur um fjölgun strætóskýla í Garðabæ. Að minnsta kosta í tvígang hefur bæjarstjórn samþykkt tillögu þess efnis að setja fjármagn í ný strætóskýli.
Hversu mörgum nýjum strætóskýlum hefur verið komið upp á þessum árum í Garðabæ og hvar eru þau staðsett."

María Grétarsdóttir, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi og framkomna fyrirspurn.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju um 6. tl., minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða