Beint í efni

Sumarleyfi bæjarstjórnar 2017

Málsnúmer 1706164

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (813). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 17. ágúst 2017. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 15. ágúst 2017.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.