Fundargerð bæjarráðs frá 13/6 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (813). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 13. tl., bréf eldri borgara varðandi líkamsrækt og spurði hverju liði athugun á erindi er borist hefur um líkamsræktarstöð við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., bréf eldri borgara varðandi líkamsrækt og svaraði fyrirspurnum.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 14. tl., bréf ÖBÍ varðandi skerðingar á ákvörðun fjárhæðar sérstaks húsnæðisstuðnings.
Almar Guðmundsson, ræddi 21. tl., niðurstöður starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþrótthúss og gerði grein fyrir helstu áherslum og megin niðurstöðum í minnisblaði hópsins.
Sigurður Guðmundsson , ræddi 20. tl., niðurstöður dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og gerði grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar. Sigurður óskaði vinningshöfum, dönsku arkitektastofunni Andersen&Sigurðsson til hamingju með fyrstu verðlaun í samkeppninni.
Gunnar Valur Gíslsson, ræddi 20. tl., niðurstöður dómnefndar í samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness og 21. tl., niðurstöður starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþróttahúss. Gunnar Valur lýsti ánægju með störf dómnefndar og starfshópsins og færði öllum sem að komu þakkir fyrir vel unnin störf.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða