Beint í efni

Blikastígur 14 -Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1705260

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

1. fundur

Lögð fram umsókn húseiganda um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að bifreiðargeymsla sú sem reist hefur verið á lóðinni verði skilgreind sem vinnustofa en húseigendur eru heimavinnandi listamenn. Eigendur aðliggjandi húsa hafa með áritun sinni staðfest að þeir geri ekki athugasemd við þá breytingu. Deiliskipulag Blikastígs var samþykkt árið 1983 og telst því ekki í gildi þar sem að fyrsta aðalskipulag Bessastaðahrepps var ekki staðfest fyrr en 1986. Nýtingarhlutfall samkvæmt hinu samþykkta deiliskipulagi skal að hámarki vera 0,3. Byggingarmagn lóðarinnar nú samsvarar nýtingathlutfalli 0,21. Því er svigrúm innan byggingarreits til þess að reisa bifreiðargeymslu. Heimild er í ákvæðum deiliskipulags til þess að gera frávik frá ákvæðum deiliskipulagsins ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skipulagsstjóri vísar byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum aðliggjandi lóða. Þar sem að samþykki hlutaðeigandi liggur fyrir gerir skipulagstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfisins.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

11. (813). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Blikastíg 14.

Bæjarráð Garðabæjar

03

22. (1788). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingibjörgu Eyþórsdóttur, kt. 201257-6039, leyfi fyrir byggingu bílskúrs við einbýlishúsið að Blikastíg 14.

Fyrirvari er gerður um samþykki bæjarstjórnar á samþykkt skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1788). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Blikastíg 14.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir bifreiðargeymslu að Blikastíg 14. Leyfi fyrir sambærilegri framkvæmd árið 1989 og söklar og gólfplata þá steypt. Deiliskipulag er ekki í gildi og því hlýtur byggingarleyfisumsókn meðhöndlun skv. 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Samþykki nágranna liggur fyrir. Í samræmi við 3.mgr.44. greinar er tímabil grennarkynningar stytt þar sem að þeir sem að grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir gera ekki athugasemd við umsóknina. Skipuagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir umræddri framkvæmd.