Dalsbyggð 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (813). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Dalsbyggð 8.
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (1788). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Haraldi Líndal Péturssyni, kt. 130478-5499 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Dalsbyggð 8.
Fyrirvari er gerður um samþykki bæjarstjórnar á samþykkt skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
03
22. (1788). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um heimild til útgáfu á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Dalsbyggð 8.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn viðbyggingar. Viðbygging er innan byggingarreits sem kemur fram á mæliblaði.
Samþykki nágranna liggur fyrir.Deiliskipulag er ekki í gildi og því hlýtur byggingarleyfisumsókn meðhöndlun skv. 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44. greinar er tímabil grennarkynningar stytt þar sem að þeir sem að grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir gera ekki athugasemd við umsóknina. Skipuagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir umræddri framkvæmd.