Beint í efni

19. (1785). fundur

23.05.2017
Bæjarráð Garðabæjar

19. (1785). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

23.05.2017

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1703348

01

Opið bókhald

Fulltrúar frá KPMG mæta á fundinn og halda kynningu á opnu bókhaldi Garðabæjar sem fyrirhugað er að birta á vef Garðabæjar.

Hallgrímur Arnarsson, Davíð Halldórsson og Hafdís Sandholt frá KPMG mættu á fund bæjarráðs og greindu frá opnu bókhaldi og lykiltölum úr bókhaldi Garðabæjar sem verða birtar á mælaborðum á vef Garðabæjar innan tíðar.

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri sat einnig fundinn undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 1608015

02

Lyngás 1 E-F-G-H - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Maríustakki ehf., kt.560813-0660, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 68 íbúðum.

Málsnúmer 1703262

03

Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.

Tilboð í verkið voru opnuð 15. maí sl. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1410266

04

Opnun tilboða í framkvæmdir við Urriðaholtsskóla, fullnaðarfrágangur húss að utan og innan að hluta.

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við fullnaðarfrágang húss að utan og innan að hluta, í 1. áfanga Urriðaholtsskóla.

ÍAV ehf. kr. 693.825.832

Munck á Íslandi ehf. kr. 651.061.831

Spennt ehf. kr. 864.293.460

Eykt ehf. kr. 713.895.827

Kostnaðaráætlun kr. 605.000.000


Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Muncks á Íslandi ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Gunnar Valur Gíslason vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1705191

05

Bréf Strætó bs. varðandi beiðni um umsögn sveitarfélaga um lengri þjónustutíma strætisvagna, dags. 09.05.17.

Bæjarráð Garðabæjar leggur áherslu á, m.a. með vísan til niðurstöðu rekstrarúttektar á Strætó bs frá vordögum 2017, að svo kostnaðarsöm breyting sem hér um ræðir fyrir öll aðildarsveitarfélög Strætó verði vísað til fjárhagsáætlunar Strætó fyrir árið 2018 og fái þar hefðbundna umfjöllun stjórnar og eigendavettvangs byggðasamlagsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1705201

06

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um landgræðslu, 406. mál, dags. 16.05.17.

Málsnúmer 1705200

07

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skóga og skógrækt, 407. mál, dags. 16.05.17.

Málsnúmer 1705199

08

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál, dags. 16.05.17.

Málsnúmer 1703007

09

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um veitingu styrkja úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2017.

Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita eftirfarandi styrki úr Hvatningarsjóði ungra listamanna.

Ragnhildur Róbertsdóttir, kt. 010794-2939, og Kolbrún Brynja Róbertsdóttir, kt. 080697-2019, styrk að fjárhæð 150 000 kr. vegna stuttmyndaverkefnis.

Pétur Geir Magnússon, kt. 100794-2339, fjárhæð 130.000 kr. vegna myndlistarverkefnis.

Jónas Roy Bjarnason, kt. 070991-2689, fjárhæð 150.000 kr. vegna handritagerðar.

Jón Rúnar Ingimarsson, kt 170293-339, Eyrún Engilbertsdóttir, kt. 010793-2629 og Pétur Emil Júlíus Gunnlaugsson, kt. 080793-2949, fjárhæð 150.000 kr. vegna tónlistarverkefnis.

Málsnúmer 1705227

10

Erindi SSH varðandi þjónustusamning við Fjölsmiðjuna, dags. 18.05.17.

Málsnúmer 1705228

11

Erindi SSH varðandi tillögu að samkomulagi um miðlun upplýsinga vegna daggæslu í heimahúsum, dags. 18.05.17.

Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1703008

12

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2017

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2017. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 31. maí nk. kl. 17:30 í samkomuhúsinu á Garðaholti.

Greint var frá viðurkenningum til menningar og lista sem verða tilkynntar sama tíma.

Málsnúmer 1705230

13

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu um hækkun á gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna með gilditíma frá 1. maí 2017.

Fylgiskjöl