Opið bókhald
Málsnúmer 1703348
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1785). fundur
Fulltrúar frá KPMG mæta á fundinn og halda kynningu á opnu bókhaldi Garðabæjar sem fyrirhugað er að birta á vef Garðabæjar.
Hallgrímur Arnarsson, Davíð Halldórsson og Hafdís Sandholt frá KPMG mættu á fund bæjarráðs og greindu frá opnu bókhaldi og lykiltölum úr bókhaldi Garðabæjar sem verða birtar á mælaborðum á vef Garðabæjar innan tíðar.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri sat einnig fundinn undir þessum dagskrárlið.