Bréf Strætó bs. varðandi beiðni um umsögn sveitarfélaga um lengri þjónustutíma strætisvagna, dags. 09.05.17.
Málsnúmer 1705191
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (1785). fundur
Bæjarráð Garðabæjar leggur áherslu á, m.a. með vísan til niðurstöðu rekstrarúttektar á Strætó bs frá vordögum 2017, að svo kostnaðarsöm breyting sem hér um ræðir fyrir öll aðildarsveitarfélög Strætó verði vísað til fjárhagsáætlunar Strætó fyrir árið 2018 og fái þar hefðbundna umfjöllun stjórnar og eigendavettvangs byggðasamlagsins.