Fjölsmiðjan - Endurnýjun þjónustusamnings
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
11. (813). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að endurnýja samstarfsamning til þriggja ára við Fjölsmiðjuna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
21. (1787). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við Fjölsmiðjuna til næstu þriggja ára.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
4. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1705227 - erindi frá bæjarráði Garðabæjar þar sem farið er fram á umfjöllun fjölskylduráðs um tillögu SSH að endurnýjuðum þjónustusamningi aðildarsveitarfélaga SSH við Fjölsmiðjuna til þriggja ára.
Núverandi samningur við Fjölsmiðjuna frá 2014 hefur verið framlengdur í þrígang en féll úr gildi í lok mars. Fyrirliggjandi drög að endurnýjuðum þjónustusamningi eru efnislega óbreytt frá fyrri samningi að öðru leyti en því að lagt er til að árlegur þjónustustyrkur sveitarfélaganna skv. 5. gr. samningsins verði uppfærður til samræmis við verðlagsþróun og fylgi á samningstímanum verðlagsbreytingum í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs.
Garðabær hefur eins og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu komið að rekstri Fjölsmiðjunnar og nýtt þau úrræði sem Fjölsmiðjan býður upp á fyrir ungmenni úr sveitarfélaginu. Úrræði Fjölsmiðjunnar er mikilvægt í þjónustu við þau ungmenni sem hafa flosnað upp úr námi og/eða ekki náð fótfestu á vinnumarkaði.
Stjórn Fjölsmiðjunnar, starfsmenn hennar og samstarfsaðilar vinna nú stefnumótunarvinnu og aðgerðaráætlun sem gert er ráð fyrir að ljúki á þessu ári en eftir það þarf að vinna úr niðurstöðum og þeim breytingum sem mögulega þarf að fara í.
Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með því við bæjarráð að gerður verði þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna til þriggja ára á grundvelli fyrirliggjandi draga að endurnýjuðum þjónustusamningi.
Bæjarráð Garðabæjar
05
19. (1785). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.