21. (1787). fundur
21. (1787). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
06.06.2017
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Súlunes 10-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rögnvaldi Guðmundssyni, kt. 180958-7389, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Súlunesi 10.
02
Urriðaholtsstræti 10-12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eignarhaldsfélaginu Skip ehf., kt. 690794-2339, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 34 íbúðum og verslunarými á 1. hæð að Urriðaholtsstræti 10-12.
03
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um tillögu um styrk til að vinna handbók sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að veita Félagi fagfólks í frítímaþjónustu styrk allt að fjárhæð kr. 600.000 til að vinna að framgangi verkefnis til að efla fagmennsku í frístundastarfi sveitarfélaga. Bæjarstjóra falin afgreiðsla málsins.
Fylgiskjöl
04
Afgreiðsla fjölskylduráðs um endurnýjun samnings við Fjölsmiðjuna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við Fjölsmiðjuna til næstu þriggja ára.
Fylgiskjöl
05
Bréf Landsnets um kostnaðarskiptingu vegna færslu á loftlínu í jarðstreng, dags. 30.05.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Landsnet um hugsanlega kostnaðarskiptingu vegna færslu á loftlínu Hnoðraholtslínu í jarðstreng
Fylgiskjöl
06
Minnisblað samráðshóps um almenningssamgöngur á Álftanesi, dags. 15.05.17.
07
Bréf Framkvæmdasýslu ríkisins um lóð fyrir nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29.05.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
08
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru SG á breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs og útgáfu á framkvæmdaleyfi vegna gervigrasvallar, dags. 01.06.17.
09
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru BSS á breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs og útgáfu á framkvæmdaleyfi vegna gervigrasvallar, dags.01.06.17.
10
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til ráðuneytis um tillögur að reglugerðarbreytingu vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, dags. 24.05.17.
Lagt fram.
11
Bréf Helgu Sigurðardóttur og Sigurðar Eggertssonar varðandi aðkomu að einbýlishúsinu Tjarnarlandi, dags. 28.05.17.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
12
Bréf íbúðalánasjóðs varðandi húsnæðisáætlanir sveitarfélaga, dags. 24.05.17.
13
Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ um þakkir fyrir styrk, dags. 19.05.17.
14
Bréf Björgvins Sigurðssonar varðandi framkvæmdir við gervigrasvöll o.fl. í Bæjargarði, dags. 01.06.17.
Bæjarráð samþykkir að fresta framkvæmdum við gervigrasvöll í Bæjargarði að svo stöddu og felur bæjarstjóra að leita úrlausna í samráði við íbúa.