4. fundur
4. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
31.05.2017
Kl. 16:30 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Málskot vegna umsóknar um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1703112 málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Umsókn er synjað. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundagerðar.
02
Fjölsmiðjan - Endurnýjun þjónustusamnings
Tekið er fyrir mál nr. 1705227 - erindi frá bæjarráði Garðabæjar þar sem farið er fram á umfjöllun fjölskylduráðs um tillögu SSH að endurnýjuðum þjónustusamningi aðildarsveitarfélaga SSH við Fjölsmiðjuna til þriggja ára.
Núverandi samningur við Fjölsmiðjuna frá 2014 hefur verið framlengdur í þrígang en féll úr gildi í lok mars. Fyrirliggjandi drög að endurnýjuðum þjónustusamningi eru efnislega óbreytt frá fyrri samningi að öðru leyti en því að lagt er til að árlegur þjónustustyrkur sveitarfélaganna skv. 5. gr. samningsins verði uppfærður til samræmis við verðlagsþróun og fylgi á samningstímanum verðlagsbreytingum í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs.
Garðabær hefur eins og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu komið að rekstri Fjölsmiðjunnar og nýtt þau úrræði sem Fjölsmiðjan býður upp á fyrir ungmenni úr sveitarfélaginu. Úrræði Fjölsmiðjunnar er mikilvægt í þjónustu við þau ungmenni sem hafa flosnað upp úr námi og/eða ekki náð fótfestu á vinnumarkaði.
Stjórn Fjölsmiðjunnar, starfsmenn hennar og samstarfsaðilar vinna nú stefnumótunarvinnu og aðgerðaráætlun sem gert er ráð fyrir að ljúki á þessu ári en eftir það þarf að vinna úr niðurstöðum og þeim breytingum sem mögulega þarf að fara í.
Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með því við bæjarráð að gerður verði þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna til þriggja ára á grundvelli fyrirliggjandi draga að endurnýjuðum þjónustusamningi.
03
Ættleiðing
Tekið er fyrir mál nr. 1503315 beiðni um umsögn í tengslum við umsókn um ættleiðingu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Ungt fólk og lýðræði 2017 - Ályktun ráðstefnu
Tekið er fyrir mál nr. 1704121 - Ungt fólk og lýðræði 2017 - ályktun ráðstefnu. Lagt fram og rætt. Fjölskylduráð hefur hug á því að fá fulltrúa ungmennaráðs Garðabæjar á fund sinn í haust þar sem ráðin kynna störf sín.
05
Beiðni um umsögn sveitarfélaga vegna CISV á Íslandi
Tekið er fyrir mál nr. 1705277 Beiðni Barnaverndarstofu um umsögn Fjölskylduráðs vegna fyrirhugaðra sumarbúða CISV í Álftanesskóla sumarið 2017.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Fjölskylduráð mælir með því endurnýjað starfsleyfi verði veitt að því tilskildu að tilskilin gögn liggi fyrir.