15. (1781). fundur
15. (1781). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
25.04.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Dyngjugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HK húsum, kt. 491116-0990 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Dyngjugötu 5.
02
Dyngjugata 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HK húsum, kt. 491116-0990 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Dyngjugötu 7.
03
Dyngjugata 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HK húsum, kt. 491116-0990 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Dyngjugötu 9.
04
Dyngjugata 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HK húsum, kt. 491116-0990 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Dyngjugötu 11.
05
Garðprýði 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristbirni Gunnarssyni, kt. 080474-3119, leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni við Garðprýði 5.
06
Lindarflöt 52 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari Arnarsyni, kt. 240678-3819 leyfi fyrir endurbyggingu bílskúrs og breytingum á innra skipulagi núverandi einbýlishúss við Lindarflöt 50.
07
Mosagata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK húsum, kt. 530612-2950 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Mosagötu 12.
08
Mosagata 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK húsum, kt. 530612-2950 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Mosagötu 14.
09
Mosagata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK húsum, kt. 530612-2950 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Mosagötu 16.
10
Mosagata 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK húsum, kt. 530612-2950 leyfi til að byggja parhús á lóðinni við Mosagötu 18.
11
Stekkjarflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Valdimar Tryggva Kristóferssyni, kt. 220370-3729 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Stekkjarflöt 22.
12
Afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði leikskóla 2017.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2017.
Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 7.300.000 úr sjóðnum til 14 verkefna.
Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.
Fylgiskjöl
13
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
14
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 222. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (íbúakosningar), 184. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
16
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumörkun og aðgerðaáætlun um kolefnishlutlaust Ísland, 114. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
17
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 270. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
18
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 87. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
19
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur ofl.), 333. mál, dags. 10.04.17.
Lagt fram.
20
Ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ 2017 - Ungt fólk og lýðræði.
Lögð fram og vísað til umfjöllunar í ungmennaráði og til kynningar í viðeigandi nefndum.
Fylgiskjöl
21
Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um gjaldskrá 2017-2018.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um gjaldskrá skólagjalda skólaárið 2017-2018.
Fylgiskjöl
22
Drög að skilmálum vegna sölu á byggingarrétti lóða við Brúnás og Brekkuás.
Bæjarráð samþykkir skilmála um sölu á byggingarrétti lóða við Brúnás 10 og 12 og Brekkuás 7.
Fylgiskjöl
23
Minnisblað tækni- og umhverfissviðs um hraðhleðslustöð fyrir rafbíla á Garðatorgi.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir minnisblaði um hraðhleðslustöð á Garðatorgi en leitað hefur verið eftir kynningu tog tilboðum frá fjórum aðilum.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að leitað verði samningu um Hleðslu ehf á grundvelli tilboðs um áætlaðan kostnað að fjárhæð kr. 6.800.000 en verkefnið er styrkt af Orkusjóði um fjárhæð kr. 3.260.000.
Fylgiskjöl
24
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur varðandi samning um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog, dags. 20.04.17.
Lagt fram svar við fyrirspurn um samning um lóð fyrir veitingastað.
Fylgiskjöl
25
Tilboð í framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og Bæjargarð.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. að fjárhæð kr. 159.175.583 með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Jafnframt er fyrirvari gerður um að fallið verði frá kröfu um stöðvun framkvæmda í kærumáli hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna breytinga á deiliskipulagi Ásgarðs. Bæjarráð samþykkir að falla frá breikkun gervigrasvallar við Stekkjarflöt og mun því eingöngu vera um að ræða framkvæmdir við endurnýjun á gervigrasi vallarins.
26
Endurskoðun samstarfssamnings í tilefni 50 ára afmælis Skátafélagsins Vífils.
Bæjarráð samþykkir endurskoðun samstarfssamnings við Skátafélagið Vífils í tilefni af 50 afmæli félagsins.