Beint í efni

Afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði leikskóla 2017.

Málsnúmer 1703250

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (1781). fundur

Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2017.
Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 7.300.000 úr sjóðnum til 14 verkefna.
Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

02

25. fundur

Efni fundar var afgreiðsla umsókna úr þróunarsjóði, fundinn sátu einungis kjörnir fulltrúar.
Til fundarins komu leikskólastjórar þeirra skóla sem áttu umsóknir í sjóðinn og kynntu verkefnin og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði kr. 7.300.000 í samræmi við reglur sjóðsins. Alls bárust 15 umsóknir og var heildarupphæð þeirra kr. 12.702.750. Lagt er til að 14 verkefni fái styrk.
Leikskólanefnd fangar áhugaverðum umsóknum sem bera merki um metnaðarfullt starf í leikskólum Garðabæjar.

Fylgiskjöl