24. (1790). fundur
24. (1790). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.06.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1605001
01
Kauptún 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Costco Wholesale á Íslandi ehf., kt. 700614-0690 leyfi fyrir fjölgun á bensíndælum á lóðinni við Kauptún 2.
Málsnúmer 1611294
02
Minnisblað VSÓ varðandi samninga við einkaðila um uppbyggingu heilsuræktarstövðar við íþróttamiðstöðina Ásgarð, dags. 22.03.17.
Í minnisblaðinu er lýsing á mögulegu ferli varðandi val á samningsaðila vegna uppbyggingar á heilsuræktarmiðstöð í og við Ásgarð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706244
03
Bréf Vegagerðarinnar varðandi fjögurra ára áætlun um hafnarframkvæmdir og sjóvarnir, dags. 15.06.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að uppfæra og endurnýja umsókn vegna sjóvarna á Álftanesi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706265
04
Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir Golfskála Oddfellow
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1706270
05
Bréf Klúbbsins Geysis um styrk, dags. 20.06.17.
Bæjarráð samþykkir að veita styrktarfélagi klúbbsins Geysis styrk að fjárhæð kr. 100.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1501316
06
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sjálandi, dags. 14.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706280
07
Bréf Reykjavíkurborgar um gerð lýsingar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Kópavogsgöng, dags. 14.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706298
08
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi gerð lýsingar vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Stekkjarbakki, dags 16.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703262
09
Framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði.
Lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem kröfu um stöðvun framkvæmda við gerð gervigrasvallar í Bæjargarði er hafnað. Áframhaldandi framkvæmdir eru
á áhættu Garðabæjar meðan ekki hefur verið kveðinn upp endanlegur úrskurður.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við hönnun heildarsvæðis innan Bæjargarðs þar sem gert verði ráð fyrir stígum, trjá og runnagróðri sem og fjölbreytilegri leikja og útivistaraðstöðu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706312
10
Bréf Urriðaholts ehf. um leyfi til landmótunar við Víkurgötu og Dýjagötu, dags. 20.06.17.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðum við Víkurgötu og Dýjagötu og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 ásamt því að benda á að framkvæmdin er í samræmi við skilmála deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1704003
11
Drög að samningi um uppbygging við Víkurgötu - viðauki VIII.
Bæjarráð samþykkir samning við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu Víkurgötu samkvæmt deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1703352
12
Tilboð í byggingarrétt lóða við Brúnás og Brekkuás.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tilboðum í byggingarrétt lóðanna við Brekkuás 7 og Brúnás 10 og 12.
Alls bárust 9 tilboð í lóðina við Brekkuás 7, 6 tilboð í lóðin Brúnás 10 og 9 tilboð í lóðina Brúnás 12
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilboð með fyrirvara um staðfestingu á fjármögnun og undirritun úthlutunarsamnings í samræmi við söluskilmála.
Brekkuás 7 kr. 26.594.296 án gatnag.gj. Hákon Magnússon og Hildur Björg Ingólfsdóttir.
Brúnás 10 kr. 17.594.294 án gatnag.gj. Vilborg Grétarsdóttir.
Brúnás 12 kr. 17.594.294 án gatnag.gj. Vilborg Grétarsdóttir.