14. (1780). fundur
14. (1780). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
11.04.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru á breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs og Bæjargarðs, dags. 03.04.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna Garðabæjar í málinu.
Fylgiskjöl
02
Drög að samningi um kaup á landi Vífilsstaða.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Fylgiskjöl
03
Bréf Alþingis um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar, 378. mál, dags. 06.04.17.
04
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um niðurfellingu gatnagerðargjalda, dags. 07.04.17.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að nýta heimild í 1. mgr. 6. gr. laga um gatnagerðagjöld að fella niður álögð gatnagerðargjöld fjárhæð kr. 6.504.594 vegna byggingar vélageymslu fyrir golfvöll enda ljóst að ekki mun koma til kostnaðar við gatnagerð í tengslum við bygginguna.
Fylgiskjöl
05
Tillaga um breytingu á samkomulagi við Hjallastefnuna um rekstur leikskóla.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu við áður samþykktan samning þar sem fjöldi barna er aukinn og felld niður aldurstakmörkun.
Fylgiskjöl
06
Opnun tilboða í framkvæmdir við gervigrasvelli við Ásgarð og Bæjargarð.
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Grafa og grjót ehf. kr. 236.619.550
Háfell ehf. kr. 159.175.583
Kostnaðaráætlun kr. 187.195.790
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
07