Útboð skólamálsverða í grunnskólum 2017.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (1784). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í skólamálsverði í grunnskólum Garðabæjar þar sem útkoman byggir á besta hlutfalli milli verðs (60%) og gæða (40%)
Verð Matseðlar Rekstur Samtals
Skólamatur ehf. 60,00 25 15 100
ISS Íslandi ehf. 59,11 23 15 97,11
Sölufélag Garðyrkjumanna (i) 59,36 23 15 97,36
Sölufélag Garðyrkjumanna (ii) 56,24 25 15 96,24
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Skólamats ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
30. fundur
Skólanefnd samþykkir að farið verði í útboð á skólamat sem fyrst og leggur áherslu á að hægt verði að bjóða bæði í mötuneyti allra skólanna samhliða og eins einn og einn skóla. Áhersla verði lögð á fjölbreytni og hollustu.