30. fundur
30. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Flataskóla
15.02.2017
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - varamaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Brynhildur Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Guðrún Ólafía Þorleifsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1610274
01
Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk 2016
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með kynninguna sem og heildarniðurstöðu Garðabæjar í samræmdum könnunarprófum 2016 þar fram kemur að í heildina er Garðabær vel yfir landsmeðaltali.
Málsnúmer 1702014
02
Skóladagatal 2017 - 2018
Umræður um skóladagatal og og þá ólíku hagsmuni sem taka þarf tillit til við gerð þess. Skólanefnd samþykkir tillögu Skóladeildar um að vetrarfríið verði fært aftur um viku og verði 19.-23. febrúar þar sem þrjú skólaráð hafa gert formlega athugasemd um að vetrarfrí sé í sömu viku og öskudagur.
Skólanefnd samþykkir beiðni frá Flataskóla um tilfærslu á starfsdegi enda tryggi skólinn möguleika á gjaldfrjálsri vistun í tómstundaheimili fyrir þá sem þess óska á hefðbundnum skólatíma.
Málsnúmer 1702231
03
Útboð skólamálsverða í grunnskólum 2017
Skólanefnd samþykkir að farið verði í útboð á skólamat sem fyrst og leggur áherslu á að hægt verði að bjóða bæði í mötuneyti allra skólanna samhliða og eins einn og einn skóla. Áhersla verði lögð á fjölbreytni og hollustu.