Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1 og 3.

Málsnúmer 1606266

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir, tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 50 í 55.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

36. (1753). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 50 í 55.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

12. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóðinni Holtsvegur 1 fjölgi úr 50 í 55. Breytingin nær til hússins Lynggata 1 og 3. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda um tillöguna og er hún jákvæð. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

06

32. (1749). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

11. fundur

Lögð fram umsögn Urriðaholts og deiliskipulagshöfundar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Norðurhluta 2.áfanga. Í umsög kemur fram að erfitt sé að taka afstöðu til hvort krafa um fjölda bílastæða á lóð sé fullnægt þar sem hvorki er látin fylgja með afstöðumynd eða grunnmynd.
Skipulagsnefnd vísar málinu til umsækjanda að betur sé gerð grein fyrir tillögunni þannig að deiliskipulagshöfundar og Urriðaholt ehf geti veitt fullnægjandi umsögn.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

10. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóð fjölgi úr 20 í 25.
Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf. um tillöguna.