40. (1708). fundur
40. (1708). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
20.10.2015
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Umsókn um byggingarleyfi - Garðatorg 4
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um byggingarleyfi vegna breytinga á innra skipulagi, uppfærslu á fjölda íbúða og breytingu á byggingarlýsing þar sem leiðrétt er ákvæði um bann við starfsemi veitingastaðar.
02
Umsókn um byggingarleyfi - Hegranes 32
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar opins garðskála við einbýlishúsið við Hegranes 32.
03
Bréf Zeppelin arkitekta um byggingarlóð við Brekkuás 2, dags. 13.10.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Fylgiskjöl
04
Bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsókn Stjörnunnar um vínveitingaleyfi á herrakvöldi, dags. 09.10.15.
05
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um drög að frumvarpi um vatnsveitulög til umsagnar, dags. 09.10.15
06
Bréf íþróttafulltrúa um breyttan opnunartíma Álftaneslaugar, dags. 07.10.15.
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um breyttan opnunartíma Álftaneslaugar.
Fylgiskjöl
07
Bréf Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar um kaup á fasteignum sjóðsins, dags. 08.10.15.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
08
Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla 2015.
Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir sem bárust og leggur til að úthlutað verði kr. 1.548.448 úr sjóðnum til fjögurra verkefna.
Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.
Fylgiskjöl
09
Bréf Þjóðskrár Íslands um fasteignamat ársins 2016, dags 01.10.15.
10
Tilkynning frá félagsmálaráðuneyti um stöðuna á vinnumarkaði í september 2015, dags. 13.10.15.
Lagt fram og vísað til kynningar og umfjöllunar fjölskylduráðs.
Fylgiskjöl
11
Bréf Stígamóta um styrk fyrir árið 2016, dags 07.10.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
12
Bréf SSH um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, dags 16.10.15.
Lögð fram samþykkt stjórnar SSH um breytingu á útreikningi á kostnaði á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk ásamt breytingum á skipulagi.
Bæjarráð felur fjölskyldusviði að leita leiða um að útfæra nauðsynlegar breytingar á núverandi framkvæmd og skipulagi þjónustunnar til að ná fram lækkun á aksturskostnaði.
Fylgiskjöl
13
Bréf frá Alþingi varðandi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, dags. 16.10.15.
14
Tillaga um breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs er varðar þjónustu við eldri borgara
Félagsmálastjóri gerði grein fyrir breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs sem gerir ráð fyrir að málefni eldri borgara og heimaþjónusta verði ný starfseining. Undir eininguna heyri hjúkrunarheimilið og þjónustumiðstöðin á Ísafold, félagsleg heimaþjónusta og starfsemi Jónshúss. Forstöðumaður Ísafoldar er stjórnandi einingarinnar.
Fylgiskjöl
15
Drög að samkomulagi um kaup á Þórukoti á Álftanesi.
Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi um kaup á Þórukoti en um er að ræða kaup á einbýlishúsi ásamt landspilda sem er 3,4 ha. að stærð.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
16
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um breytingar á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, dags. 15.10.15.
17
Viljayfirlýsing Garðabæjar og Gagnaveitu Reykjavíkur um samstarf við ljósleiðaravæðingu í Garðabæ
Fram kom tillaga um að fella út úr 1.ml. 5. mgr orðin „meðal annars að bærinn.“.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsing við Gagnaveitu Reykjavíkur um samstarf við ljósleiðaravæðingu í Garðabæ með framkominni breytingu.
18
Bréf Eyglóar Ingadóttur varðandi almenningssamgöngur á Álftanesi, dags. 10.10.15.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu og m.a. að upplýsa bréfritara um að á vegum Strætó bs. fer reglulega fram í samráði við bæjaryfirvöld endurskoðun á áætlun einstakra leiða.
Fylgiskjöl
20
Álit stjórnar Persónuverndar um vinnslu og öryggi persónuupplýsinga í vefkerfinu Mentor, dags. 22.09.15.
21