Beint í efni

Staðan á vinnumarkaðnum 2015

Málsnúmer 1510147

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1510147 staðan á vinnumarkaði 2015. Bæjarráð Garðabæjar vísar tilkynningu frá Velferðarráðuneyti um stöðuna á vinnumarkaði í september 2015 til kynningar og umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Fram kemur að skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun hefur dregist nokkuð saman það sem af er ári. Skráðum atvinnuleitendum hefur einnig fækkað. Fjöldi atvinnulausra úr Garðabæ í lok september var alls 137 og var breytingin frá síðasta mánuði -11 og frá sama mánuði í fyrra -68. Fækkun atvinnuleitenda virðist helst vera meðal þeirra sem skemmst hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun eykst skráð atvinnuleysi að jafnaði í október vegna árstíðabundinna áhrifa og er því gert ráð fyrir að skráð atvinnuleysi í október aukist lítið eitt.

Bæjarráð Garðabæjar

02

40. (1708). fundur

Lagt fram og vísað til kynningar og umfjöllunar fjölskylduráðs.

Fylgiskjöl