Beint í efni

8. fundur

09.12.2015
Fjölskylduráð Garðabæjar

8. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.12.2015

Kl. 16:00 - 16:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1306446

01

Fósturmál

Tekið er fyrir mál nr. 1306446 fósturmál. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1510207

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð október

Tekið er fyrir mál nr. 1510207 málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1511053

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1511053 málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1508210

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1508210 málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1510147

05

Staðan á vinnumarkaðnum 2015

Tekið er fyrir mál nr. 1510147 staðan á vinnumarkaði 2015. Bæjarráð Garðabæjar vísar tilkynningu frá Velferðarráðuneyti um stöðuna á vinnumarkaði í september 2015 til kynningar og umfjöllunar í fjölskylduráði.

Fjölskylduráð fjallar um málið. Fram kemur að skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun hefur dregist nokkuð saman það sem af er ári. Skráðum atvinnuleitendum hefur einnig fækkað. Fjöldi atvinnulausra úr Garðabæ í lok september var alls 137 og var breytingin frá síðasta mánuði -11 og frá sama mánuði í fyrra -68. Fækkun atvinnuleitenda virðist helst vera meðal þeirra sem skemmst hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun eykst skráð atvinnuleysi að jafnaði í október vegna árstíðabundinna áhrifa og er því gert ráð fyrir að skráð atvinnuleysi í október aukist lítið eitt.

Málsnúmer 1510187

06

Viljayfirlýsing um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks

Tekið er fyrir mál nr. 1510187 viljayfirlýsing um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks.

Bæjarráð Garðabæjar vísar til kynningar í fjölskylduráði viljayfirlýsingu um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks.

Fjölskylduráð fjallar um málið. Fram kemur í viljayfirlýsingu; að gert er ráð fyrir að Vinnumálastofnun verði ábyrg fyrir vinnumarkaðsúrræðum fyrir fatlað fólk. Litið verður á atvinnu- og hæfingartengda þjónustuþætti sem vinnumarkaðsúrræði og það kemur í hlut Vinnumálastofnunar að taka við öllum umsóknum, meta færni einstaklinga og beina þeim á þær brautir sem best henta hverjum og einum eftir því sem kostur er. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Vinnumálastofnun sjá um almennar vinnumarkaðsaðgerðir, verndaða vinnustaði, starfsþjálfun, atvinnu með stuðningi og aðra atvinnutengda endurhæfingu en sveitarfélögin munu annast framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða sem tengjast iðju og hæfingu og starfrækslu "blandaðra" vinnustaða, iðju, hæfingar og verndaðrar vinnu.