Beint í efni

Samkomulag ríkis og sveitarfélaga vegna atvinnumála fatlaðs fólks

Málsnúmer 1510187

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (1724). fundur

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1510187 viljayfirlýsing um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks.
Bæjarráð Garðabæjar vísar til kynningar í fjölskylduráði viljayfirlýsingu um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Fram kemur í viljayfirlýsingu; að gert er ráð fyrir að Vinnumálastofnun verði ábyrg fyrir vinnumarkaðsúrræðum fyrir fatlað fólk. Litið verður á atvinnu- og hæfingartengda þjónustuþætti sem vinnumarkaðsúrræði og það kemur í hlut Vinnumálastofnunar að taka við öllum umsóknum, meta færni einstaklinga og beina þeim á þær brautir sem best henta hverjum og einum eftir því sem kostur er. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Vinnumálastofnun sjá um almennar vinnumarkaðsaðgerðir, verndaða vinnustaði, starfsþjálfun, atvinnu með stuðningi og aðra atvinnutengda endurhæfingu en sveitarfélögin munu annast framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða sem tengjast iðju og hæfingu og starfrækslu "blandaðra" vinnustaða, iðju, hæfingar og verndaðrar vinnu.