41. (1709). fundur
41. (1709). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.10.2015
Kl. 08:00 - 09:10
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 og árin 2017 - 2019, ásamt forsendum og framkvæmdayfiliti.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 eru:
Heildartekjur 11.486.644 þkr.
Heildargjöld 10.445.715 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.040.929 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) 715.910 þkr.
Rekstrarniðurstaða 325.019 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.
02
Umsókn um byggingarleyfi - Markarflöt 9
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi Flata vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Markaflöt 9.
Fylgiskjöl
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um deiliskipulag í landi Brekku, Kirkjubrúar og í Kumlamýri.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að falla frá tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubrú, sem auglýst var samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar, dags. 5. mars 2015. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að unnið verði að gerð deiliskipulags fyrir heildarsvæðið sem nær til Brekku, Kirkjubrúar, Kumlamýrar og Grandastykkis.
Fylgiskjöl
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir að fjölga íbúða á lóðinni við Lyngás 1 úr 119 í 138 eða um 19 og að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar.
Fylgiskjöl
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Ásbúð og Holtsbúð með breytingum þar sem tekið er tillit til innsendra athugasemda sem hafa verið yfirfarnar samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga skal send til málsmeðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við tillöguna, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi við Bæjargötu 1-9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna breytinga á innkeyrslu lóðarinnar við Bæjargötu 1-9. Lagt er til að grenndarkynning falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
07
Lýsing vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir tillögu að lýsingu, sem unnin er í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, um hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Fylgiskjöl
08
Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um viljayfirlýsingu um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks, dags. 16.10.15.
Lögð fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði
Fylgiskjöl
09
Bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsókn um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í Breiðumýri, dags. 12.10.15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Fylgiskjöl
10
Bréf SSH varðandi fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2016, dags. 16.10.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
11
Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2015.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
12
Bréf Kvennakórs Garðabæjar um endurnýjun samstarfssamnings, dags. 19.10.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
13
Ályktanir frá landsþingi Þroskahjálpar 2015.
14
Minnisblað mannauðsstjóra um gildistíma kjarasamninga starfsmanna Garðabæjar, dags. 23.10.15.
15
Bréf Fólksins í bænum varðandi verkefni starfshóps um undirbúning byggingar fjölnota íþróttahúss, dags. 17.10.15.
16
Bréf Kópavogsbæjar um lýsingu vegna deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis, dags. 15.10.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
17
Bréf húsfélagsins Smiðsbúð 12 um álagningu fasteignagjalda, dags. 16.10.15.
18