Beint í efni

Markarflöt 9 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1508471

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1745). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aðalsteini Jónssyni Þorsteinssyni, kt. 280482-5289, leyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið að Markarflöt 9.

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (1718). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markaflöt 9. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast tillagan því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

16. (780). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi Flata vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Markarflöt 9.

Bæjarráð Garðabæjar

05

41. (1709). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi Flata vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Markaflöt 9.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

14. fundur

Lögð fram fyrirspurn um það hvort að ákvæði um hámarkslengd bílageymslu eigi við miðað við framlagða breytingartillögu. Gert er ráð fyrir að bílageymsla sem er á neðri hæð framlengist í átt að götu. Skipulagsnefnd telur að rök megi færa fyrir því að ákvæði um hámarkslengd bílageymslu eigi síður við þegar svo háttar. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata og vísar henni til grenndarkynningar. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tímabil grenndarkynningar ef samþykki þeirra sem hún nær til liggur fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 7, 8, 10 og 11.